Fakta ehf. Fakta ehf. er traust og framsækið hugbúnaðar og ráðgjafa fyrirtæki, stofnað árið 1986. Fyrirtækið sérhæfir sig í skönnunarkerfum, verkferlum og pappírslausum lausnum, en framleiðir einnig viðskiptakerfi fyrir systurfyrirtæki sitt Reglu.Auk almennra skjalastýringakerfa hefur Fakta framleitt ýmsar sérhæfðar lausnir sem byggja á stöðluðum einingum sem fyrirtækið framleiðir. Dæmi eru um sérhæfð kerfi frá Fakta þar sem vistaðar eru milljónir skannaðra mynda og skjala í öruggum gagnagrunni. Við hjá Fakta höfum leitast eftir að framleiða og bjóða viðskiptavinum okkar traustar og einfaldar lausnir sem reynast vel í rekstri. Með skjalastjórnun og rafrænni skjalavörslu uppfyllum við markmið okkar, að auðvelda fyrirtækjum aðgengi og úrvinnslu skannaðra gagna sem notuð eru í daglegum rekstri. Starfsmenn Fakta búa yfir víðtækri reynslu og þekkingu sem komið hefur okkur í fremstu röð hugbúnaðarfyrirækja, en þekkingu þessa höfum við notað til að þróa og framleiða hágæða lausnir og þjónustu. Í dag eru lausnir frá Fakta í notkun meðal stærstu og virtustu fyrirtækja landsins í hinum ýmsu atvinnugreinum, en þar má meðal annars nefna fjármála- og samgöngufyrirtæki, trygginga- og olíufélög ásamt iðn- og samskiptafyrirtækjum. Fagleg og traust vinnubrögð eru í hávegum höfð hjá Fakta þar sem þarfir og væntingar viðskiptavinarins liggja í fyrirrúmi. Skoða kynningarbækling
Nánari upplýsingar veitir: Kjartan Ólafsson, framkvæmdarstjóri kjartan@fakta.is
|